Próflokadjamm
Kæru lestrarhestar, nú er komið að því að safnast saman og fagna því að
prófin, skilaverkefnin, skýrslurnar og formúlublöðin verði nú lögð til
hliðar. Samkvæmt reglugerð um hvíld stúdenta eftir próf, segir að mikilvægt
sé fyrir andlega og líkamlega vellíðan að safna orku í hópi vina og sötra
nokkrar kollur eftir átökin. Am-Events í samstarfi við Miller hafa því
boðað til próflokagleði, sem ætluð er nemendum háskólanna. Gleðskapurinn er
haldinn á Nasa, þann 16.maí og er það enginn annar en snillingurinn og
glimmersnúðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson sem mun sjá um að skemmta fólki fram
eftir nóttu. Ballið byrjar á slaginu 23:00 og stendur yfir þangað til búið
er að spæna upp spariskóna.
Miðaverð eru litlar 1500 kr í forsölu, en 2000 kr við hurð. Hægt er að
nálgast miða á Nasa þann 15. og 16.maí milli kl: 16:00 til 20:00. Allar
nánari upplýsingar veita Am-Events í síma: 588-0101, eða
amevents@amevents.is
Sjá plakat: http://amevents.is/proflokadjamm/
Skilabođ
Jólaball háskólanna
Fékk tilkynningu sem ég vil endilega koma á framfæri.
Jólaball Háskólanna verður haldið á Broadway föstudaginn 21. desember.
Fram koma hljómsveitirnar Á Móti Sól og Jet Black Joe, en einnig verða
plötusnúðarnir DJ Danni Deluxxx & 1985 í hliðarherbergjum. Húsið opnar
klukkan 23:00. Hægt verður að kaupa miða í forsölu á vefsíðunni
http://www.jolaball.is , en miði í forsölu háskólanna kostar 1500 kr.
Almenn forsala hefst síðan í vikunni fyrir ballið.
----o0o----
Einnig vildum við koma á framfæri því að við höfum ákveðið að bjóða þeim
nemendafélögum sem magnkaupa miða (10 miða eða fleiri) fyrir nemendur
sína, hvern miða á 1300 kr.
Ef þið náið þeim fjölda af fólki sem vill fá miða, látið mig þá vita og redda þessu tilboði fyrir ykkur.
Vonandi nýtist þetta einhverjum :)
Kv. Silla formand
Tilkynning
Í tilefni próflokanna föstudaginn 21. desember nk. ætlar Félag Verkfræðinema að halda sitt árlega svakalega PRÓFLOKAPARTÝ, í fyrra héldum við eftirminnilegasta ball skólaársins á Broadway en núna færum við okkur nær miðbænum og verðum með engum öðrum er DJ Páli Óskari á NASA og ætlum við að skemmta okkur langt fram á morgun næsta dags.
*** DJ Páll Óskar er ávísun á villtri, trylltri og sveitri dansstemingu eins og honum einum er lagið. ***
Við bjóðum öllum nemendum við Háskóla Íslands tækifæri til þess að tryggja sér fyrst miða í nemendaforsölu áður en selt er í almennri forsölu, þar sem takmarkað miðamagn er selt í forsölu.
Nemendaforsalan stendur fram á miðvikudaginn 29. nóvember og getur hver nemandi pantað 2 miða. Pöntunin fer fram á heimasíðu FV, fv.hi.is og er miðaverð einungis 1.500 kr í nemenda-forsölunni. En almennt miðaverð er 2.100 kr. í hurð. Með jólapartýs-kveðjum Félag Verkfræðinema.
Julefrokost frestađ
Annað:
Jacob er að fara að yfirgefa okkur, og hann langar að fá að kveðja okkur.
Vorum að spá í að hittast á kaffihúsinu í Þjóðminjasafninu eftir síðasta próf.
Mér skilst að það sé miðvikudagurinn 19.des, kl.12.
Þannig að ég vil stinga uppá að við hittumst hress og kát kl 12.30 á kaffihúsinu á Þjóðminjasafninu. Bara í klukkutíma, rétt til að kveðja þennan frábæra kennara! :)
Sendi ykkur mail um það
Kv. Silla formand
Tilkynning vegna Julefrokost
Jæja kæru samnemendur og dönskuáhugafólk!!!
Nú er komið að því að skipuleggja (vonandi) hinn árlega julefrokost
dönskudeildarinnar. Hann verður haldinn þann 30. nóvember næstkomandi
heima hjá henni Sillu, mæting kl 18. Skipulagið mun verða með sama hætti
og í fyrri s.s. hver og einn leggur eitthvað til, hvort sem það er matur
eða drykkir. Við munum væntanlega setja saman lista yfir hvað verður á
boðstólunum og þið getið valið hvað þið viljið koma með með því að skrá
ykkur á hann. Ef þið hafið einhverjar uppástungur eða óskir um hvað þið
viljið hafa eða koma með þá er bara endilega að hafa samband við mig eða
Sillu.
Juleforkosten verður einungis haldin ef áhugi er fyrir honum þannig að
endilega látið mig vita hvort þið viljið taka þátt, helst fyrir lok
þessarar viku og í seinasta lagi um miðja næstu viku. Þetta heppnaðist
mjög vel í fyrra og skemmtum við okkur vel þannig að ég vona að sem
flestir sjái sér fært að taka þátt.
Á öðrum nótum: Fyrir ykkur fyrsta árs nema: Þar sem líður senn að lokum
þessarar annar þá þurfið þið að fara að velja ykkur skorarfulltrúa þar sem
hún Sara muni ekki halda áfram í því hlutverki eftir áramót. Endilega
látið mig eða Jakob, þar sem hann er okkar tengiliður (alla vegna seinast
þegar ég vissi) vita hver mun verða skorafulltrúi. Einnig væri æðislegt ef
einhverjir hefðu áhuga á að taka nemendafélagið að sér þar sem ég og Silla
klárum dönskuna í vor.
Kveðja
Agnes Björk
Videokvöld
Við stungum nefnilega uppáþví við partýgestina okkar hvort það myndi vekja lukku hjá fólkinu.
Núna þurfum við bara að heyra í ykkur kæru samnemendur, mynduð þið koma á videokvöld sem væri haldið, t.d. annan hvern þriðjudag??? (engin kennsla í dönskunni á miðvikudögum)
Við myndum halda skoðanakönnun hér til hliðar þar sem 3-4 myndir kæmu til greina, og þið getið þá haft áhrif á hvaða mynd verður sýnd. Sniðugt ekki satt?
Endilega segið ykkar skoðun á þessu. Það verður að vera smá þáttaka til að við nennum að standa í þessu.
P.S. Svo vil ég endilega endurtaka það að ef einhver hefur áhuga á embætti skorarfulltrúa, þá er það laust frá áramótum og væri mjög gott ef viðkomandi gæti farið að mæta með Söru á fundi.
Þetta er ekki mikil vinna eða tímafrek, en mjög mikilvæg fyrir alla nemendur í deildinni.
Svo eru líka allir sem vilja velkomnir í nemendafélagið.:)
Kv. Silla formaður
Partý frh
Partý!!! :)
Það verður haldið heima hjá Agnesi, kl.21!
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta, þrátt fyrir mjög stuttan fyrirvara.
Við erum að reyna að nálgast e-mail adressur hjá öllum skráðum í dönskudeildinni, og munum við þá senda heimilisfangið á e-maili. Ef það næst ekki að fá listann, þá munum við gefa heimilisfangið upp hér á síðunni. :)
Endilega kommentið á það hvort þið ætlið að koma eða ekki. Alltaf gaman að vita
Kv. Silla formaður
Góđan daginn gott fólk
Eins og áður hefur komið fram, þá vorum við að sækja um kennitölu fyrir okkur svo við hefðum öll réttindi sem nemendafélag innan HÍ.
Við erum s.s. komin með kennitölu, og nú er verið að vinna í að fá styrki, blaðakvóta og fleira.
Við ákváðum í vor að reyna að hafa partý mjög fljótlega eftir að skólinn byrjar í september og nú spyr ég bara,
ER EINHVER TILBÚINN AÐ BJÓÐA FRAM HÚSNÆÐI Í SLÍKT???
Endilega kommentið á það og einnig með mögulegar dagsetningar fyrir það.
En jæja, þetta er nóg af fréttum í bili.
Hlakka til að sjá alla hressa og káta á nýju skólaári
Kv. Silla formaður